Tornado....Hjalti Enok Pálsson
Þið lásuð rétt, ég ákvað því að koma með eitt óvænt-lokablogg.
Miðvikudagurinn 11.júní, afskaplega fallegur dagur sem breyttist í .....ekki eins fallegan !
Eins og flestir vita þá er ég búsettur í Kansas, U.S.A. og hef búið hér í næstum 11 mánuði,
Kansas er þekkt sem skýstróka-fylki en bærinn Manhattan, þar sem ég bý í hefur ekki séð/fengið skýstrók/hvirfilbyl í meira en 30 ár, því hafa allir sagt við mig að það sé engin hætta á þessu!
Annað kom í ljós miðvikudagskveldið, fólk fylgist með fréttum hér ,líkt og á íslandi og það voru gefnar stormviðvaranir, sem er að vísu annan hvern dag þessa tíma árs, þar sem heitir og kaldir vindar mætast og verður veðrið oft á köflum létt geðveikt, til að mynda hefur á hverju einasta kvöldi í rúmar 2 vikur verið þrumur og eldingar.
Miðvikudagskveldið um 10 leytið fóru tornado sírenur bæjarins í gang, sem þýðir að maður eigir að koma sér niðrí kjallara eða annað skjól, fjölskyldan gerði það, vorum samt ekkert hrædd, þar sem þessir tornadóar hitta aldrei Manhattan, en annað var upp á teningnum í þetta skiptið!
Það koma skýstrókur í gegnum Manhattan og svo skemmtilega vildi til að hann kom í nágrennið okkar! Hann var búinn að rústa um 50 húsum, þá meina ég algjörlega eyðileggja þau, um 150 ef ég man rétt voru vel ónýt, og meira en 1500 hlutu eithvern skaða, við vorum svo ótrúlega heppin að við búum á hæð þannig þegar hann kom til okkar skoppaði hann eiginlega yfir húsið okkar en lenti svo 15-20 metrum frá húsinu okkar, örlítið af þakinu á húsinu er skemmt en við sluppum fáááránlega vel, og má segja með öll húsin í okkar nágrenni, en annað má segja um trén, því þau rústuðust, skýstrókurinn reif þau mörg upp með rótum ,og það má vel sjá að þetta var skýstrókurinn, þar sem þau eru öll snúin upp , rafmagn fór einnig af og við fengum ekki rafmagn fyrr en föstudagskvöldið.
Í hinum hluta bæjarins er meðal annars Toyota umboð, þar brotnuðu allar rúður í bílum og bílar voru á hvolfi, einnig var önnur stór verslun og hún var gjöörsamlega ein rúst, hér í Manhattan lést enginn! Og það er alveg ótrúlegt miðað við aðstæður, það þurfti að grafa upp nokkra eftir að rústir hrundu yfir kjallara þannig þau komust ekki út. En ótrúlegt en satt þá lést engin, algjör kraftaverk.
Við tekur og hefur staðið yfir, hreinsun á bænum, á rústum húsa , fjarlægja tré og önnur skemmtilegheit, daginn eftir þegar ég labbaði um nágrennið fundum við gríða magn af random stöffi, fjölskyldumyndir, þakplötur, allskonar reikningar, fundum svo brunavarnarteikningu frá hernum, en þeir eru með military base í næsta bæ við manhattan, svona 20 mín frá, rifnar skólabækur og allskonar drasl.
Þið sem lesið þetta er kannski nokk sama um þetta, en þetta er sjokkeraði mig heilmikið ásamt öllum Manhattan-búum. Ég þakka þeim sem lásu!
Sé ykkur eftir nokkra daga! ;-) 
Myndir í albúmi...
Sorrý....Hjalti Enok Pálsson

Yebb þið heyrðuð rétt, ég Hjalti Pálsson var kosinn lélegasti bloggari ársins, því hef ég ákveðið að leggjast í dvala, (löglegann dvala) Kommenta leysi á stórann þátt í þessari framkvæmd minni...
Annars er ekki nema 1 og hálfur mánuður þangað til ég kem heim á frónna!
Get ekki annað en sagt að þetta er bittersweet, rosalega erfitt að kveðja alla hérna en það verður rosalega gott og gaman að koma loksins heim!
Ævintýri taka enda, þessi dvöl mín hér erlendis í U.S and A hefur mótað þann einstakling sem sér framtíð blasa við með ótal möguleikum, ég geri þetta fyrir ísland í leiðarljósi, því öll samskipti við umheiminn búa uppá stórbrotilega kosti, einnig hafa náttúruhamfarir brotið hjörtu margra, þá er gott að vita að heimurinn er stór og hjálpin er alltaf til staðar!
Því kveð ég þessa bloggsíðu með tár á vanga, hún hefur átt stað í hjarta mínu, ég get litið til baka frá minni dýrmætu reynslu sem á eftir að lifa með mér aldur og ævi!
Kæra hjaltip.bloggar.is - ÉG ELSKA ÞIG! ;*
Langar til að hafa einn loka myndalink á PROM myndir...
http://www.facebook.com/album.php?aid=38413&l=5e9bb&id=613754788
Á DÖFINNI:
5.-7. jún -Wakarusa Tónleikar
13.júní -Brósi kemur
17.júní -Þjóðhátíðardagur Íslendinga - ég og Denni fljúgum til L.A.!
21.jún -Kem "heim" til Manhattan
29.jún -Fyrsta ferðalag, stefnan er Ísland
1.-2 júl -ÍSLAND
2.júl - Vestmanneyjar
Helgin 4.-6. júlí Upphitunarkomupartý Hjalta Pálssonar!
hć!Hjalti Enok Pálsson
Já góðann og blessaðann daginn, marga fara að velta fyrir sér...hva Hjalti! Er hann ekki löngu dauður!
Nei ég er sko sérdeilis aldeilis ekki dauður úr öllum æðum þá svo að blogggæðin séu ekki í saga buisness class! Ég lofaði bættum og gæðanlegum bloggum en ég sveik ykkur , nei ég sveik ykkur ekki meira svona þið gáfuð mér ekki comment! Og það er það sem ég lifi fyrir!
En allavega , þá hefur margt gerst...og ég man ekki helminginn..nema ég fór til Flórída, sem var GEÐVEIKT, hrikalega skemmtilegur staður og unaðslegt veður verð með link hér neðst af myndum af flórída. Svona án gríns þá á ég erfitt með að muna restina... NEI sýndi leikrit sl. Þriðjudag sem tókst nokkuð vel, fyrsta offical leikritið á ensku sem ég er stórt hlutverk í.
Prom á næsta leyti, eða um næstu helgi, þetta verður sko grand ég er búinn að leigja mér hvítann smóking verð rossalegur,búinn að meika reservation á flottasta veitingastaðnum í bænum og svo var maður búinn að leigja hummer limmu en nei nei ...ein af stelpunum sem ég er að fara með vildi ekki hummer fannst það ekki cool, þessar stelpur!! Og já ekki má gleyma götunum í eyrunum sem eg er kominn með! Það held ég að maður sé orðinn gæji!
Íslandsför alveg að bresta á! Kem heim 2.júlí og ætla að reyna að koma strax til eyja með fyrri ferð þann dag, er einnig með stórt komupartý þá helgi, er búinn að vera að redda á fullu, þetta verður haldið í skvísusundi og um allan bæ, ætla að hafa nokkuð góða tónleika einnig í gígnum á eldfelli þessa helgi. En þetta er einungis upphitunarkomupartýið mitt. Ætla að hafa main teitið fyrstu helgina í ágúst í Herjólfsdalnum sama stað og Kveðjuteitið mitt var.
Þetta er búið að vera svoo fljótt að líða og also búið að vera rosalega gaman! Kem heim sem fullorðinn einstaklingur...þá er ég bara að meina af því að ég er orðinn 18! Ekkert mikið breyttur nema ég er kominn með skegg og sítt hár! J
Ég kveð núna og óska öllum gleðilegann fyrsta sumardag og ég vona að veðrið leikur við ykkur íslendinga eins og það gerir hér vestanhafs, ekki slæmt að hafa 25 stiga hita úti í apríl ..
Linkur á flórídamyndir: http://www.facebook.com/album.php?aid=34207&l=7bcc4&id=613754788Góðar stundir!
JK! Just kidding!Hjalti Enok Pálsson
Æji úps! lofaði að vera duglegur..... My bad!En allavega sorrý, heimta komment ef þú lest þetta! :-)
Allt Dásamlegt að frétta hér vestanhafs, Obama í sókn og fullt af stormum á leiðinni!
Það sem ég hef verið að gera undanfarna..hva..´einn og hálfan mánuð er erfitt að muna en ég ætla að stikla á því helsta...
-Fór á caucus umræður, þar sem democracy var með svona fund í stóru herbergi og fólk var að rífast , reyna að fá fólk til að kjósa Hillary á meðan aðrir að reyna að fá atkvæði fyrir Obama, virkilega gaman að sjá!
-Er sviðsmaður í Manhattan Art Center, host pabbi minn er sviðsstjóri og aðstoðarleikstjóri þannig síðustu 2 vikur hafa algjörlega farið í þetta
-Ég varð lögráða þann 3.febrúar! 18 ára gutti!
-Fór á leikhúsráðstefnu í Wichita, virkilega gaman það!
-Fór á K-state körfuboltaleik, það var hrikalega gaman og þvílíkur stemmari 6000 áhorfendur.
ýmislegt annað sem ég hef gert sem ég hreinlega man ekki, nánast 2 mánuðir síðan mjög erfitt að muna..
´
En þá að máli málanna! Flórída eftir einungis 2 vikur! Það er sko tilhlökkunarefni!
Fljúgum til Tampa þann 11. mars förum til Sarasota í College visit , förum svo til Orlando eða í Disney World verðum á hóteli þar, er svo að fara að syngja i disney world með kórnum mínum, töffaragæji?
Þannig það er bara fun fun fun!
Ég er byrjaður í voríþrótt, kjellinn er byrjaður að spila Tennis!
þannig mars og apríl verða bara æfingar æfingar....apríl er samt allveg pakkaður, fullt af mótum, maður fer vonandi á nokkur :-)
Svo var ég að fá hlutverk í skolaleikriti, heljarinnar texti á ENSKU
meira hef ég ekki að segja í bili, nema ég verð að share-a með ykkur smá , rétt til að sýna þroska 18 ára einstaklings, ég grenjaði allavega úr hlátri en það er bara ég, húmor sem mun aldrei eldast af mér! ;D
Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.
Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.
Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.
Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.
Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.
Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.
Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.
Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.
Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.
Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.
Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.
Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og jafnvel útá rasskinnar í leiðinni . Hér kæmi þvottapoki sér betur en skeinipappír.
Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.
Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð. (þessa gerð vil ég kalla "frúk (þú ætlar að FReta en það kemur óvart kÚKur)
Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.
Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.
Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kosturinn er að þarf lítið að skeina)
Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.
Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.
Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...
Góðar stundir! ![]()
Sextándi í Jólum......Hjalti Enok Pálsson
Jáá það hefði ég nú haldið!Gleðilegt nýtt ár allir saman!
Kannski kominn tími á eitt lítið blogg frá Litla Eplinu (Manhattan, Kansas)
Jólahátíðin yfirstaðin og brennan búin, jólin voru eylítið öðruvísi hjá mér í fyrra
(2007 skiluur! nýtt ár! halló?) þar sem ég hef verið alla mína ævi hjá minni fjölskyldu og alltaf haldið í sömu hefðirnar. Þessi jól voru eitt stórt ferðalag. Keyrðum til Chicago 22.des, sú keyrsla tekur ekki nema 12 tíma, en vegna veðurs þá þurftum við að fara lengri leið, þannig þessi ferð tók rúmlega 14 tíma.
Gistum hjá "ömmu og afa" í úthverfi Chicago borgar. Ég fann eiginlega aldrei fyrir þessum jólum, aðfangadagskvöld borðaði ég á kínverskum veitingastað, svo var að vísu haldið í messu.
Jólunum var svo frestað til 2. í jólum þar sem öll famelían komst ekki fyrr en þá.
De hele famelíen fór svo í Camp, eða svona sumarbúðir, og þar var lúllað 3 nætur, þar var basically ekkert að gera, því kom sér vel að ég fékk Friends seríu frá brósa í jólagjöf ásamt nokkrum dvd myndum :-)
Einnig farið í myndatökur, svona professional fyrir yearbookina, en þú ert ekki maður með m0nnum nema fara í professional myndatöku fyrir YEARBOOK maðuur!
Svo var haldið til Indiana 31.des, Eytt áramótunum og nokkrum dögum þar.
Áramótin voru mjög svo spes, ég og Daniel fórum í 2 sober party og náði ég þar að sannfæra alla um að ég væri prinsinn á Íslandi, og varð því með hrókur alls fagnaðar þetta kvöld, ég á hvort sem er aldrei eftir að sjá þetta lið aftur.......ekki nema það komi í heimsókn til mín eins og það sagði...
Fórum svo aftur til Chicago og ég sá söngleikinn Wicked á Broadway, það var baaara geðveikt! ótrúlega fallegt leikhús og geðveik sýning!
En þetta kvöld fékk ég að vera svoldill túristi í Chicago downtown, hrikalega falleg borg og mjööög stórar byggingar, m.a. Sears-towers en sú bygging var eitt sinn sú stærsta í heiminum....
Það sem er á döfinni hjá mér er Subdeb á laugardaginn, það er svona formal ball þar sem stelpur bjóða strákum..
Helgina þar á eftir er Thespian Conference þar sem allir leikhúsnördar koma saman ;D
Svo styttist í Flórída í mars!
Annars segi ég allt ljómandi! og tjekkið endilega Albúmið, ætla að setja eitthvað skemmtilegt þar...
Þangað til næst! ....
Sææælaaaar ;-)
Jćja kćru hálsar og ađrir líkamspartar! JÓLIN........Hjalti Enok Pálsson
koma á ný ég spyr ekki að því ég kominn er í hátíðarskap!
Þannig hljóma hinir ljúfu tónar Diddúar okkar sem Bjarni hefur hitt!
okey blogg mitt byrjar hátíðlega þremur línum fyrir neðan.......
Þið sem fáið ekki jólakort frá mér þá vil ég byrja á því að segja.. Gleðileg Jól og allur pakkinn!
þannig allir sem lesa þetta skulu taka þetta til sín þar sem ég sendi bara 4 kort, ég átti ekki fleiri ![]()
Það hefur sko ýmislegt drifið á mína daga, það einna helsta er Ísstormur sem kíkti í heimsókn til Kansas, þar sem hann rústaði bænum mínum í viku, þetta var semsagt í síðustu viku og féll niður skóli alla vikuna,nánast allur bærinn var rafmagnslaus að minnsta kosti í 2-3 daga, við vorum svo heppin að missa rafmagn í VIKU! , þurftu samt að flýja heimilið okkar eftir 1 dag þar sem hitinn í húsinu var um 5°C sem er 5 gráðum fyrir ofan frostmark, þ.e.a.s. fyrir þá sem nota celsius kvarðann...
Það er kannski full sterkt að segja flýja heimilið, en það var allavega ekki hægt að lifa í því þannig við þurftum að flytja til yfirmanns "múttu" sem á hrikalega flott hús með RAFMAGNI...það var ósköp ljúft en í gær fluttum við aftur heim og það er unaður að vera kominn hingað.
Fyrir ykkur sem vita ekki hvað ísstormur er þá er það þegar það er búið að vera hrikalega kalt mjög lengi og það kemur rigning þá frýs/frosnar (man aldrei hvort er rétt) hún um leið og hún snertir jörðina, öll trén voru miklu miklu þykkari ,trén voru bara orðin að ísklumpum og því miklu þyngri og féllu alveg hrikalega mikið af trjám á vegina, á rafmagnslínur, á hús, á bíla og bara á allt.
Læt myndir á ALBÚM, af þessum verknaði veðurguðanna... (þó var ingó idol ekki)
Annars er ég kominn í hátíðarskap, fjölskyldan tilkynnti mér það að jólin verða haldin á laugardaginn á heimilinu (eins og það megi eitthvað)...en það er afþví að þá þurfum við ekki að ferðast með pakkanna til Chicago, en við erum einmitt að fara að keyra þangað í 14 tíma á sunnudaginn, þannig það er bara fun fun fun í gangi. Komst loksins í dag í jólafrí , en mér var einnig tilkynnt það að það verða haldin önnur jól í Chicago með heeele famelíenn og þar gefa víst allir öllum gjafir og líka MÉR! og þá helst fleiri en 2 ! því þarf ég að fara á morgun i verslunarleiðangur til að kaupa milljón gjafir handa mörgum "frænkum og frændum"
Hlakka samt hrikaleg til að koma til Chicago, förum víst í eitthvað kaskrilljónslega stórt mall þar sem verður rææækilega refsað kortinu mínu!
VÁ! ÞETTA ER LANGT BLOGG!...þetta er jólafjöf mín til ykkar allra!
Elsku bestu lesendur ég óska ykkur enn og aftur
Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Með saknaðar og samúðarkveðjum fyrir að þið fáið ekki að njóta jólanna með mér;
Hjalti Enok Pálsson
SETTI INN JÓLAKORT Í ALBÚM, ÞETTA ER TIL ALLRA SEM ÞYKIR VÆNT UM MIG!!
....MÉR GAFST EKKI TÍMI TIL AÐ SETJA ÞETTA Í PÓST....
Góđann daginn og gleđileg jól!Hjalti Enok Pálsson
Hó hó hó!...pælið í þessum Ameríkönum, það er núna mikið á ljósvakamiðlum kanans um að breyta því sem jólasveinninn segir! í "HA HA HA" ...í staðinn fyrir "hó hó hó" ....hljómar of líkt Hoe hoe hoe....bókað eitthverjir rauðsokka feministar grenjandi í stjórnvöldum......
Annars setti ég fáeinar myndir í Albúmið....
2. des! sem segir okkur það að 1.des var í gær og 3. des þar af leiðandi á morgun!
og 24.des sem er að vísu bara eins og 24.maí hér....eftir 22 daga! ...
25.des er AÐAL dagurinn hér...ég veit ekki hvernig jólin verða hjá mér keyri allavega eitthverja 14 tíma til Chicago og verð þar um jólin.....svo Indiana um áramót, fun fun fun....öðruvísi en vonandi bara stuuð...
Helgin bara róleg...er að fara á eitthvað AFS holiday party
Mér líður alltaf eins og ég sé að fara á AA fund þegar ég fer á svona AFS hitting!
Allir með nafnspjald og það eru svona 15 manns, sitjum að vísu ekki í hring en þetta er bara eitthvað svo kjánalegt! , til dæmis er alltaf happadrætti í lokin og stóra spurningin hver vinnur PEnnann! eða jú Jólapappírinn!!
Eitt algjörlega random, hrikalega er reggie tónlist góð!
Þeir sem vilja fá jólakort frá mér skrifið það í comment!
Ef þið viljið senda mér jólakort sem mundi rosalega gleðja mitt litla íslenska hjarta þá sendið þið á:
Hjalti Palsson
1951 Bluestem Terr.
Manhattan, KS 66502
U.S.A.
getur vel verið að þetta seu bara draumórar...ég meina ..hver sendir mér jólakort :(
Ég kveð! og óska öllum góðs gengis í prófum! ;-)
-NÚ máttu kikja á myndirnar...þ.e.a.s. eftir að þú skrifar comment!!-
Ţakkargjörđarhátíđ, hátíđ matar og ....meiri matar...Hjalti Enok Pálsson
Já góðann dag! góðan dag glens og grín já er mitt fag ,hopp og hí tralla lí uppá nefið nú ég sný......Thanks giving núna, jólin á næsta leyti...þá kemur yfir svoldil lægð í lífi Hjalta, geta ekki gert tradition sem maður hefur gert í 16 ár! Borða sama jólamatinn og gera allt hið sama! , því má eiginlega segja að ég haldi ekki uppá jólin, því jólin eru aldrei jólin nema jólin séu haldin sem jól! SKILUR ?
Væri alveg til í að fara heim um jólin og koma svo bara aftur hingað eftir áramót, en þaaað er víst ekki í boði... Söknuður! talandi um söknuð! ERNA-V!! ;D
Hrikalega gott að komast í smá frí frá þessum blessuðum rútínu skóla!
Sunnudaginn síðastliðinn fór ég á söngleikinn Fiddler on the roof, virkilega góður og skemmtilegur söngleikur í flottu stóru leikhúsi, ég meina hver kannast ekki á lög á borð við If i was a rich man!
Nokk skemmtilegt þaað!....
Ég er búnað kaupa mér inneign á skype þannig ég get hringt í síma úr tölvunni, algjöör snilld og kostar bara píííínulítið!
Byrjaði á því að gera örlítið símaat, og varð Bjarni Bragi fyrir valinu, hann er enn að skeina sig ég tók hann svo illa!
Annars er ég alltaf svo tómur þegar ég blogga, fæ mjög oft snilldarhugmyndir yfir daginn,svo þegar ég sest við tölvuna þá gjörsamlega tæmist ég allur....
JÚ KANNSKI EITT!...að vísu veit engin hver þetta er , nema kannski þa´einna helst Bjarni Bragi!
ég er að fara á fyrirlestur á mánudaginn hjá engum öðrum en Defense secretary ROBERT GATES!
Amen! hann er sko frægur! :D erum að tala um að hann tók við af Donald Rumsfeld , og allir eiga nú að kannast við hann! haaa! ?
BÆ!
Mamma ég var óţekkur í skólanum.......Hjalti Enok Pálsson
Mikið rétt, Hjaltinn sem fór ALDREI til skólastjórans í sinni grunnskólagöngu, þótti prúður sitt fyrsta ár í Framhaldskólanum í Vestmannaeyjum var tekinn á teppið eftir 3 tíma í fyrradag,Þessi atburður átti sér stað 14.nóv 10:34 am. að staðartíma!
Í tímanum sagði ég ekki orð, og segi yfirleitt ekki mikið í þessum tíma þar sem yfirleitt er verið að tala um Native Americans, sem mér finnst allveg HUND!
Mrs. Price spurði mig loks hver munurinn væri á Karlmönnum og kvennmönnum,
ég svaraði á minni íslensku-ensku " Men's have penis"
Það mátti heyra saumnál detta, eftir stundarsakir ætlaði allt um koll að keyra.
Mér leið eins og Ladda um tíma en það varði aðeins í örfáar mínútur, þegar bjallan gall aðeins mínútu síðar þá fyllast gangarnir (eins og bíómyndunum)
Kennarinn rauk á eftir mér og ég er heppinn að vera ekki sendur úr landi!!!
"I am dead serious!"
Að segja orðið PENIS í kennslustofu er svipað að segjast ætlað sprengja skólann á morgun!
Agalega eru þessir Kanar hallærislegir get bara ekki annað sagt!
Afhverju geta þeir ekki verið Ligeglad eins og við Íslendingar!
Alveg er ég viss um það að Ágústa hefði ekki tekið mig á teppið hefði ég sagt TYPPI í stærðfræði tíma.
Annars er að sjálfsögðu allt gott að frétta af mér ef þið voruð eitthvað að pæla í því þar að segja.
Þakkargjörðarhátíðin (verður að vera svoldið íslenskur) á Fimtudaginn næsta, því er frí á miðv. , fimt, og föstudag...
Verður örlítið étið næstu vikuna!
Ég þarf 10 comment til að blogga aftur! ;D
Annars Blehkkkg ;*
Hell week yfistađin...Hjalti Enok Pálsson
Jááá þessi vika er búnað vera löng og erfið, og helgin verður notuð til að hvíla lúin bein...Frumsýning á þriðjudaginn og mánudag verður general.....
Ég er allveg blanko með hvað ég á að segja en ég ætla bara að láta nokkrar myndir af æfingu...
Einnig lítið myndband af einni senu af æfingu...
http://youtube.com/watch?v=WWt-rDeivOQ

Human again dans....

Daniel bróðir....

Be our guest dans....
Kem með innihaldsmeira blogg á næstunni...
